Lesendur Mbl.is í vandræðalegri frétt

Er þetta ekki aðeins of langt gengið? Það eru takmörk fyrir því hverju er básúnað í fjölmiðla og þetta er klárlega langt yfir strikið.

 "The line is a dot to you Vala"

FootinMouth 


mbl.is Pabbi Völu Grand í vandræðalegri uppákomu
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hefur Mogginn ráð á prófarkarlestri?

Það fer einhvern veginn alltaf í taugarnar á mér þegar fréttir eru birtar á mbl.is án þess að svo virðist sem nokkur einasti maður hafi lesið fréttina yfir. Nú eru fréttir sem prentaðar eru í Mogganum prófarkarlesnar fyrir prentun en það virðist ekki eiga við um mbl.is. Það er einstaklega meinlegt að rekast endalaust á málfars- og stafsetningarvillur á vefnum og þó get ég ekki talist til málfarsfasista.

Þessi frétt fer t.a.m. öfugt ofan í mig.

Reyndi að brjótast inn til fyrrverandi

Karlmaður gisti fangaklefa lögreglunnar á Selfossi í nótt. Maðurinn var handtekinn þegar hann reyndi að brjótast inn til fyrrverandi eiginkonu sinni og núverandi sambýlismanni hennar í nótt. Hann hafði brotið glugga í íbúðinni þegar parið varð hans vart og hafði samband við lögreglu sem mætti þegar á staðinn og handtók hann. Maðurinn verður yfirheyrður í dag.

http://www.mbl.is/mm/frettir/innlent/ 2010/05/08/reyndi_ad_brjotast_inn_til_fyrrverandi/


mbl.is Reyndi að brjótast inn til fyrrverandi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Verkfjall

Það er eina nafnið sem kemur til greina á þetta nýja fjall: Verkfjall

 

 

Frétt mbl.is


mbl.is Nýtt fjall á Fimmvörðuhálsi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Níðingsháttur stjórnvalda

Nú get ég ekki lengur orða bundist. Þetta er níðingsháttur stjórnvalda af verstu sort. Ríkisstjórnin er óvinsæl og notfærir sér þá verkfall flugumferðarstjóra til að afla tímabundinna vinsælda á kostnað launþega.  Ekki varð ég var við neina slíka umræðu þegar flugmenn boðuðu verkfall, eða þegar flugvirkjar fóru í verkfall. 

Þar fyrir utan hefur verkfall flugumferðarstjóra þau áhrif að flug innanlands, til og frá Íslandi tefst um 4 klst. FJÓRAR KLUKKUSTUNDIR. Annað eins hefur nú gerst sökum veðurs eða bilana. Verkfallið hefur ENGIN áhrif á alþjóðaflugið í gegnum svæðið og ENGIN áhrif á sjúkra- og neyðarflug. Það er því ekkert annað en níðingsháttur að ætla að setja lög á aðgerðir sem flugumferðarstjórar fóru í eftir að hafa verið samningslausir í marga mánuði. Það er staða sem enginn á að þurfa að vera í. Lögreglumenn eru í sömu stöðu en geta ekki beitt verkfalli til að knýja á um samning. Flugumferðarstjórar geta það hins vegar og gera. Í staðinn fyrir að senda þau skilaboð til samningsaðila að SEMJA fara stjórnvöld þá leið að kúga vinnandi fólk sem reynir af öllum mætti að fá samning.


mbl.is Lög á verkfall undirbúin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er löggan að vinna hjá Olís

Ég brosti út í annað í morgun þegar ég las laugardagsmoggann. Það var að finna þessa fréttamynd ásamt texta.

 

Nú spyr ég: Eru laun lögreglumanna virkilega svo léleg að þeir þurfi að vinna hjá Olís á milli verkefna?


Ég átta mig ekki á myndinni

Ég hreinlega skil ekki myndina sem fylgir þessari frétt. Mér finnst hún einfaldlega ekki ganga upp. Ef þú hefur skýringar á myndinni þá máttu endilega útskýra málið fyrir mér.

Frá Kastrup

Umrædd frétt mbl.is


mbl.is Með fölsuð skilríki við komuna til Danmerkur
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Talandi um að vera í afneitun

Það er greinilegt að þessi pólska kona trúir hverju einasta orði sem litli engillinn hennar segir henni. Það er auðvitað ekki inni í myndinni að læknisleikur dótturinnar hafi gengið helst til langt. Nei. Hún segist hafa orðið ólétt í sundi og þá er það bara svoleiðis Shocking
mbl.is Getnaður í sundlauginni?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Myndbirtingar Vísis

Ég hef margsinnis rekið mig á að á visir.is eru birtar myndir með fréttum sem eiga þó alls ekki heima með viðkomandi frétt. Þetta er ótrúlega óvandað að mínu mati og væri miklu betra að sleppa myndum í staðinn fyrir að setja inn eittthvað svona heimskulegt. Hér fyrir neðan eru tvö dæmi:

Nóg að gera hjá lögreglu á Bíladögum

Frétt af erli lögreglu á Akureyri vegna bíladaga og með fylgir mynd af eftirmálum mótmæla vörubílstjóra við Rauðavatn fyrir rúmu ári.

http://www.visir.is/article/20090620/FRETTIR01/178640260

 

Önnur skjálftahrina við Krýsuvík

Frétt af jarðskjálfta sem varð við Grindavík og með fylgir mynd af skemmdum eftir jarðskjálfta sem varð fyrir ári síðan.

http://www.visir.is/article/20090619/FRETTIR01/304097446 

 

Meira brak fundið úr vél Air France

Frétt af brotlendingu Airbus farþegaþotu Air France og með fylgir mynd af allt öðru vísi flugvél frá engu flugfélagi. Eina sem þær eiga sameiginlegt er að vera með vængi (og heita báðar Airbus) 

http://www.visir.is/article/2009967962666

 

Þetta eru bara léleg vinnubrögð og lýsa vel þeim gæðum sem maður má búast við á visir.is. 


Auðvitað er biðlisti

Þetta þarf ekki að koma neinum á óvart. Prius eru líka snilldarbílar í alla staði. Ég ætti að vita það, búinn að eiga þrjá Priusa á jafn mörgum árum Smile

 

 


mbl.is Biðlisti eftir Prius
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Aldrei má maður segja neitt

Ég hef stundum gagnrýnt fréttamenn mbl.is fyrir lélegar þýðingar, þá aðallega þegar þýðingarnar virðast unnar í miklum flýti án þess að þýðandinn hafi vandað sig mikið.

En nú lítur út fyrir að fréttamennirnir hafi tekið þessa gagnrýni svo nærri sér að þeir eru hættir að þýða fréttirnar. Amk hefur einhver byrjað á þessari frétt en gefist upp í miðju kafi og bara skellt enska textanum inn. 

Fréttinn á mbl.is  


mbl.is Brak ekki úr vélinni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband